Af „tapi“ Landsvirkjunar
Snæbjörn Guðmundsson
2024-09-30
Í Morgunblaðinu 26. september síðastliðinn sakaði forstjóri Landsvirkjunar þau, sem vilja verja Þjórsá og lífríki hennar fyrir óafturkræfum áhrifum Hvammsvirkjunar, um að valda fyrirtækinu og íslensku samfélagi milljarða króna „tapi“ vegna meintra „tafa“ við byggingu virkjunarinnar.
Þrátt fyrir hundalógíkina sem felst í þessum ásökunum skulum við umræðunnar vegna taka hana aðeins lengra.
Árið 2015 sendi Landsvirkjun meðfylgjandi skjal með virkjanaáætlunum sínum til Landsnets (sem var þá raunar í meirihlutaeigu Landsvirkjunar) þar sem síðarnefnda fyrirtækið vann að kerfisáætlun sinni.
Virkjanaáætlun Landsvirkjunar árið 2015, sent til Lansnets.
Virkjanaáætlun Landsvirkjunar árið 2015, sent til Lansnets.
Í áætlunum sínum sagðist Landsvirkjun gera ráð fyrir að reisa 15 nýjar virkjanir á árunum 2015–2024 og auka með þeim uppsett afl sitt um tæp 1100 MW og raforkuframleiðsluna um 7000 GWst/ári (um 50% aukning á þáverandi afli og raforkuframleiðslu fyrirtæksins). Inni í þessum áætlunum voru m.a. virkjun í Bjarnarflagi við Mývatn, þrjár virkjanir í neðri hluta Þjórsár, Búrfellslundur, virkjun Hólmsár, Skrokkölduvirkjun, jarðhitavirkjun uppi við Hágöngulón og virkjun Stóru-Laxár sem Landsvirkjun gerði ráð fyrir að gangsetja árið 2024.
Skemmst er frá því að segja að aðeins tvær virkjanir á þessu níu ára gamla plani eru komnar í gagnið; Þeistareykjavirkjun og stækkun Búrfellsvirkjunar. Hvert telur Landsvirkjun að „tapið“ sé af því að hinar hafi ekki verið reistar og hverjum er hægt að kenna um? Stoppuðu náttúruverndarsinnar allar þessar framkvæmdir?
Blessunarlega komst áætlunin ekki til framkvæmda enda eru þessar hugmyndir andstæðar allri heilbrigðri skynsemi. Hefði framkvæmdaáætlun Landsvirkjunar frá 2015 orðið að veruleika, hvað hefði það kostað almenning og atvinnulífið vegna þenslu og ofhitnunar hagkerfisins?
Hvar væri Landsvirkjun stödd í dag ef fyrirtækið hefði hent hátt í 1000 milljörðum króna í 15 virkjanir sem hefðu yfirmettað algjörlega hinn lokaða íslenska raforkumarkað og orsakað gríðarlegt offramboð af raforku?
Landsvirkjun sakar fólk, sem ber hag náttúru, lífríkis og samfélags fyrir brjósti, um að kosta fyrirtækið milljarða króna í ímynduðu „tapi“ ár hvert. En ef við horfum á loftkenndar og allt að því háskalegar framkvæmdahugmyndir fyrirtækisins þá væri raunar eðlilegra að snúa þessu við og spyrja: Hvað ætli náttúruverndarhreyfingin hafi „sparað“ íslensku samfélagi mikla fjármuni í gegnum tíðina með því að halda aftur af draumórakenndri framkvæmdagleði Landsvirkjunar og annarra orkufyrirtækja sem taka raunverulegt tap náttúrunnar aldrei með í reikninginn? Er kannski kominn tími til að reikna dæmið í hina áttina?
Höfundur er jarðfræðingur og formaður náttúruverndarsamtakanna Náttúrugriða.
Greinin birtist fyrst á Vísi.