Helstu mál tengd náttúruvernd

Sundahöfn, dýpkun
04/21/2026
Í desember 2025 tilkynntu Faxaflóahafnir um breytingu á framkvæmd sem sneri að dýpkun Sundahafnar til Skipulagsstofnunar sem ákvað að framkvæmdin væri ekki umhverfismatsskyld. Fyrri áætlanir höfðu verið umhverfismetnar en breytingin fólst í því að framkvæmdir tækju miklu styttri tíma auk þess sem gert var ráð fyrir að varpa hættulegu, krabbameinsvaldandi PCB-menguðu botnsseti í hafið við Engey, rétt við fuglaverndarsvæði Akureyjar. Náttúrugrið kærðu ákvörðunina til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem hún væri í grundvallarþáttum ólík fyrri útfærslu. ÚUA felldi ákvörðun Skipulagsstofnunar úr gildi í apríl 2026 á grundvelli þess að hin nýja útfærsla Faxaflóahafna á dýpkun Sundahafnar gæti ekki talist vera breyting á framkvæmd þar sem engin leyfi hefðu verið gefin út fyrir framkvæmdinni á grundvelli fyrra umhverfismats.

Hvalárvirkjun; framkvæmdaleyfi
03/26/2026
Í mars 2026 var framkvæmdaleyfi fyrir „fyrsta áfanga“ Hvalárvirkjunar fellt úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Fjögur náttúruverndarsamtök höfðu kært leyfisveitinguna – Landvernd, Náttúrugrið, Náttúruverndarsamtök Íslands og Ungir umhverfissinnar. Í úrskurði ÚUA fann nefndin mjög að leyfinu sjálfu vegna fjölmargra annmarka á því, en ekki síður taldi ÚUA að sjálft umhverfismatið fyrir Hvalárvirkjun væri svo gallað að ekki væri hægt að byggja á því við leyfisveitingar af nokkru tagi. Þetta var einn mesti sigur náttúruverndarhreyfingarinnar á síðari árum.

Sigölduvirkjun
11/20/2025
Náttúrugrið kærðu í apríl 2025 framkvæmdaleyfi Ásahrepps fyrir stækkun Sigöldustöðvar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, en fyrirhugað er að auka uppsett afl hennar úr 150 MW í 215 MW með því að fjölga túrbínum úr þremur í fjórar. Náttúrugrið töldu umhverfismatsskýrslu stækkunarinnar ófullnægjandi hvað varðar áhrif framkvæmdanna á vatn þar sem óvissa var um áhrif á vatnshlot á svæðinu í skilgreiningu laga um stjórn vatnamála. Auk þess hafði almenningur ekki fengið fullnægjandi aðkomu að umhverfismatsferlinu á meðan á því stóð. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála féllst á þessi rök og felldi framkvæmdaleyfið úr gildi.

Strok eldislaxa
09/4/2025
Náttúrugrið höfðu árið 2023 farið fram á það við Umhverfisstofnun að stofnunin gripi til aðgerða gagnvart Arctic Sea Farm ehf. eftir að 3.500 eldislaxar sluppu úr eldiskví fyrirtækisins í Patreksfirði, í samræmi við markmið laga um umhverfisábyrgð sem eru „að tryggja að sá sem ber ábyrgð á umhverfistjóni af völdum atvinnustarfsemi eða yfirvofandi hættu á slíku tjóni komi í veg fyrir tjón eða bæti úr tjóni ef það hefur orðið og beri kostnað af ráðstöfunum sem af því leiðir í samræmi við greiðslureglu umhverfisréttarins.“ Málið þvældist á milli MAST, Fiskistofu og lögreglunnar í eitt og hálft ár en var loks fellt niður snemma árs 2025. Náttúrugrið kærðu þá ákvörðun til ÚUA sem ógilti ákvörðun UOS og gerði Umhverfis- og orkustofnun að fjalla aftur um málið.

Búrfellslundur
09/12/2024
Náttúrugrið kærðu virkjunarleyfi OS vegna Búrfellslundar til ÚUA og telja að virkjunarkosturinn hefði aldrei átt að rata í virkjanaflokk sökum gildis svæðisins fyrir útivist innlendra og erlendra ferðamanna sem heimsækja hálendið til að upplifa öræfakyrrð einna verðmætustu óbyggða Evrópu og þótt víðar væri leitað. Vindorkuverið yrði á sjálfu miðhálendi Íslands og mun samkvæmt rannsóknum skerða gildi ferðalaga almennings um hálendið og hafa áhrif á upplifun ferðamanna langt út fyrir sjálft virkjanasvæðið, eða yfir alla Sprengisandsleið, Fjallabak og önnur dýrmæt hálendissvæði þessum leiðum tengdum.

Náttúrugrið kærðu í september 2023 framkvæmdaleyfi vegna bílastæðis og varnargarða við Námskvísl í Landmannalaugum en með framkvæmdinni hefði ásýnd svæðisins breyst varanlega. Leyfið var fellt úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála í janúar 2024 þar sem það var í ósamræmi við löggjöf á sviði náttúruverndar og umhverfismála. Með því voru áform um mikla uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu slegin af og hefur Umhverfisstofnun lýst því yfir að taka þurfi fyrri hugmyndir um framkvæmdir og umsjón svæðisins til endurskoðunar.

Efnistaka í Hörgá, haust 2023
12/21/2023
Náttúrugrið kærðu í október 2023 nýveitt framkvæmdaleyfi til efnistöku á svæði E-9 í Hörgá. Nokkur leyfi fyrir efnistöku í ánni höfðu fyrr um haustið þegar verið felld úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála en Hörgársveit veitti aftur leyfi til sömu framkvæmdaaðila örfáum vikum síðar. Neikvæð umsögn Umhverfisstofnunar og þáv. Veiðimálastofnunar voru virt að vettugi, en þar var mælt eindregið gegn áætlaðri umfangsmikilli efnistöku vegna álags og óvissu um afdrif lífríkis. Af þeim sökum, annmörkum á málsmeðferð, sem og ósamræmi við lög um stjórn vatnamála var leyfið fellt úr gildi.