Hvað gerum við nú?
Finnur Ricart Andrason
2021-06-07
Pælingar eftir áhorf Apausalypse
Hvað segjum við, hvað gerum við, nú þegar faraldurinn tekur að lægja? Við höfum lært að líta inn á við, að takast á við einmanaleika og innilokun. Við höfum uppgötvað á ný hve mikils virði mannleg samskipti, tengsl, ást og umhyggja eru. Nú þegar við stöndum nær brúninni enn nokkru sinni áður, þá má spurja sig: ætlum við að nýta þetta tækifæri og takast á, af alvöru, við þau gríðarstóru vandamál sem liggja frammi fyrir okkur? Eða ætlum við að hrökklast aftur til baka inn í þægindin, inn í ysinn og þysinn?
Þetta eru spurningarnar sem vakna við áhorf Apausalypse, leikstýrt af Anní Ólafsdóttur og Andra Snæ Magnasyni. Ég held að þessi mynd verði mikilvægur gripur, í sagnfræðilegu samhengi, í framtíðinni. Hún nær að fanga það absúrd og abstrakt andrúmsloft sem skapaðist þegar samfélaginu var skellt í lás og þegar hagkerfið var stöðvað. Myndin nær að fanga sjaldgæfan atburð í mannkynssögunni, mögulegan vendipunkt sem gæti hrint af stað stórum samfélagslegum breytingum.
Myndin setur heimsfaraldurinn í samhengi við tækifæri sem við höfum fengið til að endurhugsa lifnaðarhætti og forgangsraðanir okkar. Við höfum séð hvað við getum gert í krísuástandi. Nú þurfum við að ákveða hvort við viljum breyta þessari krísu í tækifæri, í verulegan vendipunkt. Það er í okkar höndum að ákveða hvernig við endurreisum samfélagið okkar og hvort við tökumst á við loftslagsvána, og aðrar minni sýnilegar samfélagslegar krísur, af sama krafti og við tókumst á við heimsfaraldurinn.
Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum að nota þetta tækifæri sem faraldurinn hefur veitt okkur til þess að ráðast í breytingar í samfélaginu og endurraða gildum okkar. Við söknuðum snertingar og mannlegra samskipta. Við komumst að því hversu mikið við þurfum á hvert öðru að halda, og okkur þykir jafnvel enn væntar um okkar nánust heldur en áður. Núna þurfum við að framlengja þessa væntumþykju til framtíðarkynslóða sem eru í hættu vegna gjörða okkar og aðgerðarleysis.
Ef þú vilt komast að því hvort þú deilir þessari skoðun með mér mæli ég með að þú farir á Apausalypse í Bío Paradís.
Höfundur er loftslagsaktívisti.
Greinin birtist fyrst á Vísi.