Hvalárvirkjun
Kristján Baldursson
2019-06-17
Á skammtíma gróðasjónarmið að ráða för við Hvalárvirkjun? Vilja menn ekki opna augu sín fyrir þeim miklu verðmætum sem fórna á fyrir þessa virkjun?
Vilja menn ekki sjá að verndun til framtíðar á náttúru í víðernum landsins er svo miklu meira virði en nokkur megavött í raforku? Sigríður í Brattholti bjargaði Gullfossi. Hefur ekki Gullfoss verið þjóðinni ómæld auðlind allar götur síðan? Eins verður með víðerni Vestfjarða. Þau eiga eftir að verða ómæld og margföld auðlind fái þau að vera í friði fyrir eyðileggingu virkjanaframkvæmda sem eru algerlega óþarfar. Lítil snefilvirkjun fyrir gríðarlega eyðileggingu og náttúruspjöll.
Það er oft þörf en nú er nauðsyn að stöðva þessi virkjunaráform. Það voru mikil mistök að þessi virkjun skyldi lenda í nýtingarflokki en þrátt fyrir það er enn hægt að stöðva áformin. Þingeyingar stöðvuðu Laxárvirkjun 2 þar sem sökkva átti blómlegum dal. Vestfirðingar og allir náttúruverndarsinnar landsins.
Leggjumst á eitt við að stöðva Hvalárvirkjun.
Höfundur er tæknifræðingur.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu.