Banner image

Snapadalur í Vonarskarði

Eitt fallegasta örnefni á Íslandi er Vonarskarð sem er hrjóstrugur en svipmikill dalur á milli Tungnafellsjökuls og Bárðarbungu í Vatnajökli. Skarðið liggur í 900 m hæð og í því eru vatnaskil þar sem hægt er að sjá Skjálfandafljót renna til norðurs og Köldukvísl til suðurs. Þarna riðu bændur fyrr á tímum á leið sinni milli landshluta, en í Landnámu segir frá því að Bárður Heyvangurs Bjarnasonar hafi farið í gegnum Vonarskarð þegar hann flutti búferlum úr Bárðardal í Fljótshverfi á Suðurlandi. Í Landnámu er þó ekkert minnst á Snapadal sem er helsta náttúruperlan í Vonarskarði.

Þetta stórbrotna háhitasvæði státar ekki aðeins af sérstöku nafni heldur einnig gufu og leirhverum sem stinga skemmtilega í stúf við jöklana og fjöllin í kring. Inni á milli hveranna má síðan sjá skærgræna gróðurbletti og plöntur sem eiga jarðhitanum líf sitt að þakka. Í Vonarskarði er einstakt útsýni þar sem mikið ber á Bárðarbungu og Tungnafellsjökli en senuþjófurinn er fjallgarðurinn upp af Snapadal. Þessi litríku líparítfjöll bera sérstaklega falleg og viðeigandi nöfn eins og Skrauti (1.326 m), Rauðakúla, Eggja og Laugakúla (1.305 m). Í miðju skarðinu er síðan sérlega fallegt fjall, Deilir (1.125 m), umlukið svörtum sandi og jökulám.

article image

Í Snapadal eru iðjagrænir blettir í 900 metra hæð sem má þakka jarðhitanum. Mynd/ÓMB

Í Snapadal eru iðjagrænir blettir í 900 metra hæð sem má þakka jarðhitanum. Mynd/ÓMB

Hægt er að komast í Vonarskarð gangandi úr Nýjadal á Sprengisandsleið, en þar eru skálar og tjaldstæði Ferðafélags Íslands. Þaðan er tiltölulega aflíðandi 13 km ganga í Snapadal og er í fyrstu gengið meðfram grænum Nýjadal sem að norðanverðu er girtur snarbröttum hlíðum Tungnafellsjökuls. Með hring í Snapadal er þetta því drjúgur göngudagur en sprækt göngufólk ætti að bæta við Skrauta sem er frábært útsýnisfjall. Er þá fjallgarðurinn vestur og suður af Snapadal þræddur endilangt út á Skrauta sem stendur yst.

article image

Útsýni af Skrauta er engu líkt. Hér er horft í átt að Bárðargötu með Vatnajökul í baksýn. Mynd/ÓMB

Útsýni af Skrauta er engu líkt. Hér er horft í átt að Bárðargötu með Vatnajökul í baksýn. Mynd/ÓMB

Hægt er að stytta göngu í Snapadal með því að aka annaðhvort norður fyrir Tungnafellsjökul að bílastæði við Gjósku og ganga þaðan suður í Snapadal, eða aka að bílastæði við Kolufell og ganga þaðan norður í Snapadal. Þar sem Vonarskarð er hluti af Vatnajökulsþjóðgarði verður háhitasvæðið í Snapadal ekki virkjun að bráð, enda einhver stórkostlegustu ósnortnu víðerni á hálendi Íslands.

Höfundar eru Tómas Guð­bjarts­son hjarta­skurð­læknir og náttúru­unnandi og Ólafur Már Björns­son augn­læknir og ljós­myndari.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.