Banner image

Stöðvum jarðvegseyðingu, björgum framtíðinni

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa und­an­farin ár til­einkað 5. des­em­ber bar­átt­unni gegn eyð­ingu jarð­vegs. Í ár er það gert undir slag­orð­unum „stöðvum jarð­vegseyð­ingu, björgum fram­tíð­inn­i“. Það vefst varla fyrir nokkrum manni að moldin er und­ir­staða lífs­ins á jörð­unni. Hins vegar virð­ist mikið skorta upp á skiln­ing á mik­il­vægi jarð­vegs­verndar og sjálf­bærar nýt­ingar jarð­vegs og gróð­urs.

Jarð­vegseyð­ing er böl víða um heim sem ógnar lífs­af­komu manna og eyðir líf­fræði­legri fjöl­breytni.

Þessi dagur á að minna okkur á þetta og að frek­ari aðgerðir til að fyr­ir­byggja frek­ari jarð­vegseyð­ingu séu nauð­syn­leg­ar.

Land­vernd, land­græðslu- og umhverf­is­vernd­ar­sam­tök Íslands, héldu upp á 50 ára afmæli sitt nýlega. Sam­tökin voru stofnuð af fólki og sam­tökum sem litu svo á að við það að jarð­veg­ur­inn á land­inu okkar væri að fjúka út í buskann, væru Íslend­ingar að missa fót­fest­una og sjálfan grund­völl lífs­ins á land­inu okk­ar. Einn stofn­enda Land­vernd­ar, Ingvi Þor­steins­son nátt­úru­fræð­ing­ur, skrif­aði í grein í 50 ára afmæl­is­riti sam­tak­anna: „Telja má víst að sú gíf­ur­lega rýrnun land­kosta sem gróð­ur- og jarð­vegseyð­ing hefur valdið á lið­lega 1100 árum Íslands­byggðar sé án sam­jafn­aðar mestu ham­farir sem yfir þjóð­ina hafa geng­ið, og þær hafa í ald­anna rás valdið henni meiri hörm­ung­um, rýrn­unar lífs­kjara og neyð en nokkur önnur áföll“. Þrátt fyrir ára­tuga bar­áttu og aðgerðir en enn langt til land að jarð­vegseyð­ing á Íslandi heyri sög­unni til­.

Gæða­stýr­ing í sauð­fjár­rækt

Nýleg skýrsla Ólafs Arn­alds pró­fess­ors um gæða­vottun og styrk­veit­ingar til sauð­fjár­ræktar (Rit Lbhl nr. 118) sýnir að jarð­vegs­vernd hefur svo sann­an­lega ekki fengið þann sess í íslenska stjórn­sýslu sem henni ber. Lög kveða svo á að styrki til sauð­fjár­ræktar eigi ekki að greiða að fullu nema land­notkun og land­bóta­á­ætl­anir séu í sam­ræmi við gild­andi við­mið og regl­ur. Sem betur fer upp­fyllir mik­ill meiri­hluti bænda þessi skil­yrði og fær þá styrki sem þeim ber.

En tæp­lega fimmt­ungur sauð­fjár­beitar er á landi þar sem þessi skil­yrði eru ekki upp­fyllt, segir í nið­ur­stöðu Ólafs fram­an­greindir rann­sókn.

Engu að síður fá þeir bændur sem stunda þess háttar búskap órétt­mætan fullan styrk. Þessu verður kippa í lið­inni svo ósjálf­bær beit verði stöðv­uð.

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda

Jarð­vegseyð­ing er líka böl fyrir lofts­lag­ið. Talið er að heild­ar­losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi á árinu 2017 hafi verið um 14 millj­ónir tonna CO₂ ígilda. Þar af voru tæpar fimm millj­ónir tonna vegna beinna umsvifa lands­manna (sam­göng­ur, iðn­að­ur, land­bún­að­ur, úrgang­ur) en rúmar níu millj­ónir tonna frá fram­ræstu vot­lend­i. Þessu til við­bótar eru vís­bend­inga um að illa far­inn úthagi á Íslandi geti verið að losa 2 til 20 millj­ónir tonna CO₂ árlega. End­ur­heimt land­gæða er því mik­il­væg lofts­lags­að­gerð.

Birki­skógar

End­ur­heimt birki­skóga er sér­stak­lega verð­ugt verk­efni fyrir okkur Íslend­inga. Við land­nám er talið að birki hafi þakið um 25 til 30 pró­sent lands­ins, en nú þekja þeir aðeins um 1,5 pró­sent. Verndun birki­skóga er sterkur leikur í verndun líf­fræði­legrar fjöl­breytni hér á landi; að styrkja og varð­veita til fram­tíðar þær teg­undir sem hafa frá upp­hafi skapað íslenska nátt­úru og þrif­ist hér á landi í árþús­und­ir, og bindur þar að auki kolefni. Meðal brýnna verk­efna er að varð­veita betur þá birki­skóga sem telja má nátt­úru­vætti vegna sér­stöðu. Leyn­ings­hól­ar, við mynni Vill­inga­dals inn­ar­lega í Eyja­firði, eru dæmi um slíka nátt­úruperlu sem og Teigs­skógur á Vest­fjörð­u­m.

Birki­skógum má ekki spilla með því að gróð­ur­setja í þá erlendar trjá­teg­und­ir, teg­undir sem með tím­anum stærðar sinnar vegna geta lagt þá undir sig. Flestar erlendar trjá­teg­undir ætti ekki að nota nema í þar til skil­greindum reitum þar sem ætl­unin er að rækta nytja­skóg eða ­skjól­skóga, sem auð­lind fyrir kom­andi kyn­slóð­ir.

Við upp­græðslu almennt ætti að nota inn­lendar teg­undir eða tryggja fram­vindu nátt­úr­legs gróð­urs með vernd­un. Það síð­ast nefnda er að ger­ast á Skeið­ar­ár­sandi án telj­andi aðkomu manna.

Á nyrsta hluta hans er nú að vaxa upp birki þar sem áður var auðn. Hér námum fyrstu birki­plönt­urnar land fyrir um 30 árum nú er útbreiðslan orðin yfir 30 km². Þetta sýnir að nátt­úr­leg fram­vinda gróð­urs getur verið öflug og mik­il­vægt er að nýta hana til fulls því hún styður jafn­framt að mark­miðum um líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika. Nátt­úr­leg fram­vinda tekur tíma en er bæði hag­kvæm og far­sæl leið til jarð­vegs­verndar sem jafn­framt býr í hag­inn fyrir líf­fræði­lega fjöl­breytni. Höfum það í huga við gerð land­græðslu- og skóg­rækt­ar­á­ætl­ana í fram­tíð­inni.

Höfundur var formaður Landverndar 2019–2023.

Greinin birtist fyrst á Kjarnanum.