Skilmálar
Náttúrugrið, (kt. 490721-0960; Bergþórugötu 17, 101 Reykjavík) eru almenn óhagnaðardifin félagasamtök sem starfa á sviði náttúruverndar.
Með því að gefa upp greiðslukortaupplýsingar veitir þú þjónustuaðila okkar, Áskel áskriftarþjónustu (Overcast ehf.), heimild til að skuldfæra þá styrktarupphæð sem þú hefur valið af greiðslukorti þínu mánaðarlega. Hvenær sem er mátt þú segja upp styrkgreiðslunni án frekari skýringa með því að senda póst á natturugrid@natturugrid.is eða hringja í formann Náttúrugriða í síma 894-1984, og tekur uppsögnin strax gildi. Ekki er mögulegt að fá áður veittar styrkgreiðslur endurgreiddar.
Náttúrugrið eru skráð á almannaheillaskrá og skapa styrkir að lágmarki 10 þúsund krónur á ári rétt til skattfrádráttar hjá styrkveitanda í samræmi við leiðbeiningar Skattsins um almannaheillaskrá. Að loknu hverju almanaksári er kvittun fyrir styrkjum til Náttúrugriða send til Skattsins, sem áritar frádrátt vegna styrkgreiðslnanna á framtal gefanda í samræmi við reglur þar um.
Allar upplýsingar sem afhentar eru Náttúrugriðum eru meðhöndlaðar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Allar kortagreiðslur og upplýsingar um kortanúmer fara í gegnum og eru varðveittar hjá þriðja aðila (Áskel áskriftarþjónustu, Overcast ehf.) en Náttúrugrið geyma engar greiðsluupplýsingar utan nafns, netfangs og kennitölu styrktaraðila. Upplýsingar um styrktaraðila eru ekki undir nokkrum kringumstæðum afhentar þriðja aðila utan upplýsinga sem sendar eru til Skattsins vegna framangreinds skattfrádráttar.
Komi upp ágreiningur á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum. Sé óskað eftir frekari upplýsingum um skilmála eða styrktargreiðslurnar má hafa samband við félagið í gegnum natturugrid@natturugrid.is.