Hvalárvirkjun; framkvæmdaleyfi
Í október 2025 kærðu fjögur náttúruverndarsamtök, Landvernd, Náttúrugrið, Náttúruverndarsamtök Íslands og Ungir umhverfissinnar ákvörðun Árneshrepps um að veita Vesturverki ehf. framkvæmdaleyfi fyrir svo kölluðum „fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar“ til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Kæra samtakanna sneri í stórum dráttum að nokkrum þáttum; að við leyfisveitinguna hefði ekki verið horft til laga um stjórn vatnamála; að ekki hefði verið horft til fjölmargra þátta sem ætti að meta í umhverfismatsskýrslunni frá 2017, sérstaklega áhrifa framkvæmdarinnar á vatn, óbyggð víðerni og jarðminjar eins og steingervinga sem fundust á svæðinu árið 2019; að farið hefði verið á svig við sjálfan grunn umhverfismatslöggjafarinnar um að meta skuli saman áhrif tengdra framkvæmda eins og síðari áfanga Hvalárvirkjunar og tengingar virkjunarinnar við raforkukerfið með flutningslínum, sem og samlegðaráhrif annarra framkvæmda á sama landsvæði; að mismunandi valkostir við útfærslu virkjunarinnar hefðu ekki verið metnir í umhverfismati; og að ekki hefði verið gætt að möguleikum almennings til að taka þátt í ferli umhverfismatsins.
Í stuttu máli féllst ÚUA á öll málsrök samtakanna sem kærðu. Í úrskurðinum er fundið mjög að leyfinu sjálfu, en ekki síður umhverfismatinu frá 2017 og áliti Skipulagsstofnunar (nú HMS) á því.
Sérstaklega ámælisvert að mati Náttúrugriða er það sem kemur fram í úrskurði ÚUA um valkosti: „Í reynd tekur umfjöllun í matsskýrslu og áliti Skipulagsstofnunar um framkvæmdina nær einungis mið af hagkvæmni en ekki umhverfisáhrifum.“
Verður að telja að þessi úrskurður um Hvalárvirkjun sé einn sá mikilverðasti frá síðari árum en í síðustu efnisgrein hans stendur: „Að öllu framangreindu virtu verður að telja að álit Skipulagsstofnunar um matsskýrslu framkvæmdaraðila sem og matsskýrslan sjálf, sé haldin slíkum annmörkum að hún sé ekki fullnægjandi grundvöllur til töku ákvörðunar um þá framkvæmd sem um er deilt í máli þessu.“
