Sigölduvirkjun
Náttúrugrið kærðu í apríl 2025 veitingu framkvæmdaleyfis Ásahrepps til Landsvirkjunar fyrir stækkun Sigöldustöðvar en fyrirhugað er að auka uppsett afl hennar úr 150 MW í 215 MW með því að fjölga túrbínum virkjunarinnar úr þremur í fjórar.
Við undirbúning virkjunarframkvæmdanna var lögð fram skýrsla um mat á umhverfisáhrifum. Í henni voru ekki gerð á skýran hátt grein fyrir áhrifum framkvæmdanna á vatn líkt og ber að gera í samræmi við lög um stjórn vatnamála. Um þau áhrif var unnin greinargerð sem ekki var lögð fram fyrr en eftir að samráði við almenning um umhverfisáhrif framkvæmdanna var lokið en það er brot á lögum um mat á umhverfisáhrifum sem segja skýrt að almenningur skuli hafa aðkomu að umhverfismati framkvæmda.
Úrskurðarnefndin taldi í úrskurði sínum að allir annmarkarnir samanlagðir – galli á framkvæmd umhverfismatsins, að lítið var horft til laga um stjórn vatnamála við mat á áhrif á vatn, auk efnislegrar óvissu sem var að dreifa um áhrifin á vatnshlot og tæknilegrar flokkunar þeirra á framkvæmdasvæðinu – yrðu til þess að fella yrði framkvæmdaleyfið úr gildi.
Í kjölfarið úrskurðarins ákvað Landsvirkjun að umhverfismeta á ný áhrif framkvæmdarinnar á vatn, en enn er óljóst hvort framkvæmd þess umhverfismatsferlis sé í samræmi við lög um umhverfismat. Mun mögulega á það reyna þegar kemur að leyfisveitingum tengt framkvæmdinni.
