Strok eldislaxa
Í máli 53/2025 fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kærðu Náttúrugrið ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar frá 13. mars 2025 um að grípa ekki til aðgerða á grundvelli laga um umhverfisábyrgð nr. 55/2012.
Forsaga málsins er sú að Náttúrugrið fóru fram á það við Umhverfisstofnun í september 2023 að stofnunin gripi til aðgerða gagnvart Arctic Sea Farm ehf. eftir að 3.500 eldislaxar sluppu úr eldiskví fyrirtækisins í Patreksfirði í ágúst 2023. Samtökin fóru fram á aðgerðir í samræmi við markmið laga um umhverfisábyrgð sem eru „að tryggja að sá sem ber ábyrgð á umhverfistjóni af völdum atvinnustarfsemi eða yfirvofandi hættu á slíku tjóni komi í veg fyrir tjón eða bæti úr tjóni ef það hefur orðið og beri kostnað af ráðstöfunum sem af því leiðir í samræmi við greiðslureglu umhverfisréttarins.“
Málsmeðferð Umhverfisstofnunar dróst ákaflega á langinn á meðan stofnunin vísaði fyrst til Matvælastofnunar, þá til Fiskistofu og loks til rannsóknar lögreglu á atvikinu. Fátt markvert gerðist í málinu þar til Fiskistofa tilkynnti snemma árs 2025 Umhverfis- og orkustofnun að athugun væri lokið af hálfu Fiskistofu og tók Umhverfis- og orkustofnun skömmu síðar formlega ákvörðun með bréfi til Náttúrugriða um að ekki yrði gripið til frekari ráðstafana í málinu þar sem „ekki [væri] raunhæft að ráðast í úrbætur á því tjóni sem mögulega varð vegna umrædds stroks eldisfiska“.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi þá ákvörðun úr gildi með úrskurði þar sem nefndin taldi að við málsmeðferðina hefði Umhverfis- og orkustofnunar ekki gætt að meginreglum stjórnsýslulaga um skyldu til rannsóknar máls og málshraða án þess að taka skýra afstöðu til þess hvort um umhverfistjón væri að ræða og hvort grípa skyldi til ráðstafana í samræmi við lög um umhverfisábyrgð.
Ekki verður séð að áður hafi verið litið til laga um umhverfisábyrgð með jafnskýrum hætti og í þessu máli og telja Náttúrugrið að veita verði þeim lögum meiri athygli og beita þeim með mun virkari hætti í náinni framtíð.
