Um Náttúrugrið
Náttúrugrið eru náttúruverndarsamtök sem veita stjórnvöldum, stofnunum og framkvæmdaaðilum mikilvægt aðhald með opinberri umræðu, athugasemdum, mótmælum og leyfiskærum eftir því sem við á.
Meðal þeirra umfangsmiklu mála sem Náttúrugrið hafa beitt sér í þágu náttúruverndar eru stórvægileg virkjanaáform svo sem Hvammsvirkjun í Þjórsá, Hvalárvirkjun og ýmis áform um vindorkuver, massatúrismi á hálendinu, fiskeldisleyfi í sjó, skortur á mengunarvörnum víða um land og ólögleg efnistaka í ám og vötnum. Þá hefur félagið og félagar þess staðið fyrir og tekið þátt í mótmælum náttúruverndarsamtaka, sem og ritað fjölda greina um náttúruvernd í fjölmiðla.
Náttúrugrið hafa það markmið að vernda líffræðilega og jarðfræðilega fjölbreytni í náttúru Íslands. Félagið var stofnað 2021 og formaður þess er Snæbjörn Guðmundsson, jarðfræðingur, en félagar eru ríflega 100 talsins. Náttúrugrið eru opin öllum sem styðja markmið félagsins og má óska eftir inngöngu með því að fylla út form hér á heimasíðunni eða senda póst á natturugrid@natturugrid.is. Félagið má styrkja á https://natturugrid.is/styrkja.